Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
Hrannar Snær: Mjög sáttur með mína frammistöðu það sem af er
Dóri Árna: Slakasti hálfleikurinn í sumar
Maggi Már: Bara einn staður sem þeir eiga að vera á og það er hérna í 270
Siggi Höskulds: Þetta á að skila sigri alveg sama á hvaða velli
Venni: Þetta er algjört lúxusvandamál sem ég glími við
Tómas Bjarki: Þetta er alveg kúnst
Halli Hróðmars: Leikplanið fór út um gluggann snemma í dag
Gunnar Heiðar: Þegar lestin er farin af stað er helvíti erfitt að stoppa hana
Jakob Gunnar: Einhver skrítnasta skottækni sem ég hef séð
Með þrjú stórmót og yfir 100 leiki á bakinu - „Ég fer með það í gröfina"
„Viðurkenning fyrir hana og íslenskan fótbolta"
Vann með Frank Lampard áður en hann tók til starfa hjá KSÍ
Gunnhildur elskar nýtt hlutverk - „Baldvin Leó fékk að fljóta með"
Steini: Ákveðinn lamandi ótti eiginlega
Þurfum að vinna heimakonur - „Þetta eru allt heimsklassa lið"
Fyrstu mínútur Kötlu á stórmóti - „Fokking hell maður"
Karólína Lea: Ég hef aldrei séð hana jafn hvíta í framan
Sveindís: Spilum ekki fótbolta í fyrri hálfleik
Ingibjörg: Auðvelt að segja að þetta eigi að vera venjulegt
Cecilía segir hafa verið stress í liðinu - „Ætlum að vinna næstu tvo“
   sun 29. júní 2025 20:29
Sölvi Haraldsson
Viktor varð ekki stressaður: Kennie stendur fyrir sínu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er virkilega ánægður með þennan sigur í dag, 2-0 heima.“ sagði Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Fram, eftir 2-0 sigur á ÍBV á Lambhagavellinum í dag.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  0 ÍBV

Viktor er sáttur með sigurinn en fannst liðið geta gert betur.

„Mér fannst við þannig séð ekkert sérstakir í dag. En það er sterkt þegar þú vinnur 2-0 en átt ekkert þinn besta leik.“

Var mikilvægt fyrir Fram að ná inn tveimur mörkum tiltölulega snemma?

„Já það er mjög fínt að ná mörkunum snemma en við megum aldrei leggjast til baka og fara að hvíla okkur eitthvað þá verður okkur refsað.“

Varð Viktor stressaður í seinni hálfleiknum þegar Kennie Chopart bjargaði á línu og margir héldu að dómarinn hafi dæmt mark?

„Nei þannig séð ekki. Kennie stendur fyrir sínu og ég var ekkert stressaður.“

Vildi Viktor sjá sína menn nýta skyndisóknirnar betur?

„Algjörlega. Við vorum að klikka á auðveldum sendingum og taka vitlausar ákvarðanir. Við vorum oft að reyna erfiðar sendingar í staðinn fyrir að halda aðeins meira í boltann.“

Viðtalið við Viktor Frey má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
OSZAR »